fimmtudagur, febrúar 22, 2007

Litli frændi minn...



Þessi litli drengur er sonur Sigga frænda míns og unnustu hans, Helen. Drengurinn fæddist í dag (22.02.07). Ég var svo heppin að fá að heimsækja hann og foreldra hans aðeins 9 klukkustundum eftir að hann kom í heiminn. :-)

Litli guttinn verður greinilega algjört kvennagull, enda ofboðslega sætur. Hann á nú ekki langt að sækja það. ;-)

Annars er bara ósköp lítið að frétta af okkur, Hafliði vinnur eins og hestur. Hjá mér er það skólinn og sjúkraþjálfun á tvem stöðum.

Þar til næst, bið ég ykkur vel að lifa og hagið ykkur nú vel!!!

Hrannsla.

1 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

innilega til hamingju með algerann dúllu frænda Sædís mín, og gangi þér vel í sjúkraþjálfununni.
kv. Björk

23 febrúar, 2007 00:23  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim