þriðjudagur, nóvember 21, 2006

Lasaríus...

Komiði sæl öll sömul aftur,

ég er búin að vera lasin síðustu viku. Hélt reyndar á tímabili að ekki væri hægt að hósta meira, en einhvernveginn tókst mér að slá sjálfri mér út af laginu (ef lag skildi kalla) og hósta mig í kaf. Ég held reyndar að margir hafi orðið mikið veikari en ég, en ég get svarið það að á fimmtudaginn var, var ég að því komin að gefast upp og langaði mest bara til að hætta að anda. En það gerði ég auðvita ekki. :-)

Það er sem sagt ekki svo mikið sem hefur verið að gerast hjá mér, annað en snýtubréf á náttborðinu ásamt allskonar vítamínum og sýklalyfjum. Reyndar hafa verið gestir hjá okkur. Á sunnudag fram á þriðjudag voru "litla systir" og kærastinn hennar hjá okkur. Ég verð nú að segja það að það er alveg sama á hvaða tíma sólarhrings maður hittir þau, þau eru alltaf jafn falleg bæði tvö. :-) Á þriðjudaginn kom mágkona mín og dóttir hennar og voru fram á sunnudag, nema hvað að litla skvísan fór til föður síns á föstudegi og hitti mömmu sína á vellinum á sunnudaginn. Það var nú meiri ævintýraförin hjá þeim. :-)

Pabbi segjir að ég sé að segja frá veikindum mínum hér til að fá vorkunn og héld bara svei mér þá að hann hafi eitthvað rétt fyrir sér. Sem reyndar kemur sárasjaldan fyrir... hehehe... ;-)

Jæja, ég vona að þið hafið haft það nokkuð gott greyin mín gráu.
Þar til næst bið ég að heilsa og bið ykkur vel að lifa.

Bestu kveðjur,
Hrannsla.

P.S. Bogga mín, ég er afar glöð að þið eruð komnar heilar á húfi heim!

4 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Æææiii kerlingar anginn minn, farðu nú að láta þér batna svo við getum farið að gera e-ð skemmtilegt.
Knús
mamma

23 nóvember, 2006 21:59  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Sæl systan mín, ég vona að´þér fari að batna. Þá getur þú komið með "ömmu og afa" þegar þau koma til mín. Love u, bið að heilsa kallinum

27 nóvember, 2006 23:01  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Loksins læt ég heyra í mér ;) Er löt við það þessa dagana - á að vera að læra... hmm... hvað er það!!!
Leiðinlegt að heyra að þú hafir verið veik, vona að þér sé batnað núna!
Bið að heilsa... hlakka til að hitta þig þegar ég kem heim um jólin
kv. Unnur Helga

28 nóvember, 2006 13:23  
Blogger disahronn sagði...

Æ takk elskurnar, þið eruð svoddan krútt! :-)

07 desember, 2006 18:50  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim