föstudagur, nóvember 10, 2006

Ömurlegt veður.

Sæl öll! Long time no see. ;-)

Núna síðustu tvo daga hefur veðrið verið að leika okkur grátt hér á suðvesturlandinu. Það er búið að vera fremur hvasst (fór til dæmis upp í 25-30 m/s síðustu nótt). Það hefur ýmist ringt eða snjóað. Þannig að blautt er það þessa dagana. Það er kannski þess vegna sem flestir virka svo niðurdregnir og þungir þessa stundina. Kannski er það hins vegar bara slæmt "Karma" í andrúmsloftinu sem orsakar vandræðagang síðustu daga.

Það er sem sagt búin að liggja álög á síðustu dögum hjá mér og mínum. Ég er farin að halda að óheppni mín sé smitandi. Það er nefnilega þannig að allt hefur gengið á afturfótunum hjá mér upp á síðkastið og meira að segja Borgarbókasafn Reykjavíkur hefur verið á móti mér. Þær bækur sem mig hefur vantað eru aldrei inni! Bara svona til að koma með dæmi.
En í gær fór "Karmað" alveg með félagann þegar ég sat í makindum mínum í bíl mínum á bílastæði og talaði í símann, kemur þá ekki þessi svaka Patrol og bakkar á bílinn minn. Þeir sem ekki vita það, þá er ég á litlum Polo. Helv... bílstjórinn hægði ekki einu sinni á sér, heldur bakkaði bara á mig. :-( Þannig að ég var 4 1/2 klst á slysó í gær og fékk "dísur" til að sofna.

Það er mikill ókostur að vera svona óheppin, það er smitandi. Góð vinkona mín hefur sko fengið að finna fyrir því. Hún er búin að vera í bagsli með að fá íbúð sem henni var lofað. En vonandi gengur það upp sem fyrst dúllan mín.

Jæja, krúttin mín, ég spjalla við ykkur von bráðar. Hafið það öll sem best.

Kveðjur,
Hrannsla.

2 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Hamingjan og heppnin mun éta okkur einn daginn, og við munum svífa á marglituðu skýi alla daga óheppnin mun ekkiná okkur því við verðum svo liprar :)
Farðu vel með þig ljúfan

10 nóvember, 2006 19:38  
Blogger disahronn sagði...

Æ, elsku Kristrún mín. Mikið vona ég að þú hafir rétt fyrir þér.

21 nóvember, 2006 20:18  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim